Posted by: Dísa | 15. febrúar , 2010

Dagur 30 & 31

Miðvikudagur

Mætti í sparr kl.9. Macka var mættur. Tókum 3 lotur og ég stóð mig vel. Var að ná að slaka vel á og halda fjarlægð allan tímann. Fótavinnan er líka að verða betri. Macka var sáttur. Svo tók ég 3 lotur á sekk og svo teygjubolta og dropa. Tók svo smá pásu. Kolli sparraði klukkan 11 við “boltann”. Þeir tóku 6 lotur og á meðan tók ég interval á þrekhjólinu. Kolli stóð sig mjög vel og Macka var sáttur við framfarirnar. Hann tók svo nokkar á sekk. Við enduðum svo á styrk saman. Við fórum svo öll heim til mín og Kolla að eta. Ben kom skyndilega heim með fullt af málningu og við þurftum því að rýma herbergið okkar og setjast að inni í stofu, okkar nýja heimili það sem eftir er af dvölinni. Kolli og Villi þurftu svo að hendast upp í gym aftur kl.3 því að þeir ætluðu að fá far til að horfa á bardagann hans Chris. Ég kíkti með Sirrýju í Amoeba og hún keypti Dead Man með Johnny Depp sem við ákváðum svo að horfa á um kvöldið. Einstaklega spes mynd. Kolli kom svo heim með þær fréttir að Chris hefði tapað bardaganum. Hafði víst ekki borðað fyrir hann og var alveg máttlaus. Einhver gæji sem hann hefði átt að rústa, því miður.

Fimmtudagur.

Mættum um hálf 10 í gymmið. Tókum bæði pads hjá Macka og svo sekk á eftir það. Kolli tók svo púlið uppi í gymmi en ég hentist í sturtu því Sirrý var að koma að sækja mig til að fara að klifra. Fór fyrst í Guitar Center og sótti effect sem ég hafði pantað. Þar hitti ég fyrir Slash – sem var heldur sjúskaðri en ég bjóst við :P   Þegar við komum í klifurgymmið byrjaði ég á því að taka belay-test og eftir það gátum ég og Sirrý toprope-að eins og við vildum :) Endaði svo á púlinu hans Daða. Svo var mæting heim til okkar kl.5 til að fara í Magic Castle!!! Það er megadresscode þangað inn þannig að strákarnir fengu lánað hitt og þetta frá Ben til að komast inn. Svo vorum við tilbúin öll prúðbúin til að taka leigara þangað kl.6. Þegar við komum þurftum við að segja “open sesame” við lokaða hurð til að komast inn :) Við áttum frátekið borð á veitingastaðnum þannig að þar byrjuðum við. Fengum öll dýrindismáltíðir með öllu inniföldu. Að loknum matnum þá fórum við á fyrstu sýningu kvöldsins. Við gengum svo koll af kolli á milli snilldarsýninga töframanna og annars listafólks allt kvöldið. Enduðum svo á einni sýningu í litlum sal þar sem að ég var látin sitja fremst og vera aðstoðarmaður töframannsins. Áður en hann kom fram fannst Villa rosasniðugt að brydda upp á samræðum um mig til að láta mér líða ennþá betur þarna uppi – takk Villi ;)   Ég fékk svo að taka þátt í atriðinu, sem var reyndar skemmtileg upplifun :) Við enduðum svo kvöldið á því að kynnast einstaklega góðum tengilið í Vegas, sem getur reddað okkur inn á nánast allt ef maður er þar. Frábært kvöld í alla staði :)


Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.