Föstudagur
Sparr um morguninn við Whitney. Stóð mig mjög vel fyrstu 1 og 1/2 lotuna. Macka var einstaklega sáttur með það, var að vinna vel fyrir utan, góður fótaburður og lét tilburði hennar ekki hafa áhrif á mig. En svo bara tók hún að pressa eins og brjálæðingu og náði svo mörgum höggum sem ég átti bara ekkert svar við, því miður. Er ennþá að kikna undan þessari pressu í hringnum, ekki nógu gott. Macka var svekktur því að hann segir að ég sé betri en hún og eigi að getað “outthink her”. Hún sé ekki erfið að sjá í gegnum. Ég var eins og gefur að skilja ekki mjög sátt eftir þetta og flýtti mér því að taka styrkinn og einhverja brennslu og lét mig svo hverfa. Kolli tók 45mín af skuggaboxi og fótavinnu uppí hring og tók svo styrk. Villi og Kolli fóru svo að fá sér að éta á Baja Fresh og fengu sér spiced burritos. Kíktu svo í bíó á Wolfman sem var quote Kolli “mehhh”. Kvöldið hjá mér var tekið rólegt. Ég og Sirrý horfðum bara á fullt af Grey’s Anatomy uppí sófa.
Laugardagur
Kolli fór í conditioning hjá Justin um morguninn og tók svo 6 lotur á pads og 6 lotur á sekk með Macka. Ég fór út að hlaupa í klst kringum hádegið og tók svo miniæfingar. Annars var laugardagurinn mjög rólegur. Við héngum bara heima og horfðum á hina ýmsu þætti. Kolli fór 2var á FatBurger – þeir eru víst rosalega góðir
Sunnudagur
Algjör afslöppun. Nema Kolli tók smá skokk eftir 3ja skiptið af FatBurger á hálfum sólarhring! Villi kíkti nefninlega í heimsókn og Kolli vildi fara með hann þangað
Annars bara rólegheit á þessum Valentínusardegi. Kolli sat bara úti og sleikti sólina og horfði á eitthvað í tölvunni og ég lá uppi í rúmi að lesa.

Nýleg ummæli