Posted by: Dísa | 8. febrúar , 2010

Dagur 27

Sunnudagurinn var góður dagur :)

Villi kom yfir um hálf 11 því við ætluðum að fá far með Maartin húsfélaga niður til Venice beach og Santa Monica Pier :) En við komum þó Kolla ekki úr rúminu svo að við skildum hann bara eftir. Þegar komið var niðureftir þá röltum við niður á bryggjuna í alveg hreint yndislegu veðri. Endalausir hlutir að skoða, eins og þeir sem hafa skoðað myndirnar hans Villa hafa séð :P Ég fékk til dæmis að tala við páfagauk og fékk einn koss frá henni líka. Svo röltum við meðfram allri Venice ströndinni og skoðuðum mannlífið. Sáum línuskautahokkí, strandblak, körfubolta, skate-park, útilyftingar, söng og dans. Alls konar lýð :) Töluðum við götusalana og dönsuðum með tónlistinni. Svo á leiðinni til baka þá tókum við ströndina og fengum smá sand undir yljarnar og sjó – upp að hnjám (var ekki nógu snögg :P ). Tókum svo smá rölt á 3rd street promenade og Maartin bauð okkur svo að borða snilldargóðan mat þar sem hann vinnur, á Le Pain Quotidien, einstaklega fansí organic veitingastaður. Við hjálpuðum honum svo að gera upp þar sem Villi fékk nafnið Villi “the stapler” vegna einstakra hæfileika með heftarann :)   Þegar ég kom heim hafði Kolli staðið sig einstaklega vel í að horfa á fáránlega marga sjónvarpsþætti á netinu ásamt Super Bowl og að borða mat. Svo var bara svefninn fyrir átök komandi viku.


Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.