Posted by: Dísa | 8. febrúar , 2010

Dagar 23 & 24

Miðvikudagur

Fórum snemma uppí Fortune um morguninn því ég átti að sparra hálf 9. Tók 2x3mín lotur og stóð mig ekki nógu vel. Sem betur fer verður þetta 3var í viku þannig að ég hef tækifæri til að sýna hvað í mér býr. Kolli átti svo að sparra um hálf 11. Ég tók styrkinn á meðan hann hitaði upp. Hann fékk að sparra við 2 gæja í dag. Fyrst lítinn bolta sem var alveg nett höggþungur en Kolli tók hann tiltölulega auðveldlega. Sérstaklega í 3ju lotu. Svo fór hann 2 lotur á móti Chris, sem hafði verið að brillera í lotunum á undan. Algjörlega að toppa núna rétt fyrir annan pró bardagann sinn. Allt sem Chris hafði verið að gera í fyrri lotum kaffærði Kolli í fæðingu. Stóð sig mjög vel.

Fimmtudagur

Ákváðum að byrja á því að fara uppí Wild Card um morguninn til þess að losna við Pacquiao-umferðina. Tókum rúmlega klukkustundar æfingu um 9 leytið. Pads hjá Villa. Fórum svo uppá herbergi til Villa og horfðum á eina bíómynd. Villi og Kolli töluðu við strákana í Æsir á skype :) Vorum svo komin uppí Fortune um hálf 2 leytið. Kolli tók pads hjá Macka og svo einhverjar lotur á sekk. Ég tók skuggabox og fótavinnu. Tók svo púl, kvið og bjönsj af sippi – þarf víst að létta mig um einhver pund :) Eftir æfingu fórum við á brasilískan veitingastað og borðuðum kvöldmat. Röltum svo niður á LA ink. Rosalega flott pleis. Mikið af listamönnum þarna. Maður var mikið að pæla í því að fá sér – þangað til maður heyrði verðin :/ Ákváðum svo að fara bara heim. En ekki fyrr en búið var að koma við í stærstu discount skóbúð sem ég hef séð! Það er með ólíkindum að ég kom bara með eitt skópar þaðan út :P


Responses

  1. Tattú eru líka veikleiki hvort sem er…

  2. ” . En ekki fyrr en búið var að koma við í stærstu discount skóbúð sem ég hef séð! Það er með ólíkindum að ég kom bara með eitt skópar þaðan út ”
    ég er Megastoltur af þér.. ég hefði líklegast mist mig :| :|:| en keep it up, pound og harðsperrur frá isl =)


Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.