Aftur kominn mánudagur.
Mættum uppí Fortune gym um korter í níu. Villi var þar mættur fyrir löngu og búinn að æfa. Hitti Jesse og sagðist myndu sparra á miðvikudaginn. Ég tók svo nokkrar lotur pads með Macka – ekkert of intense, orkan ennþá að hlaðast. Ég tók svo teygjubolta og dropa. Kolli átti að sparra aðeins seinna. Á meðan hann var að hita upp tók ég styrkinn, framstigsganga-skakkar armb-upphýf-búlg hnéb-hang hnélyftur-bóndaganga. Sparrið hans Kolla mætti svo ekki eftir allt saman og því tók hann 4 lotur pads með Macka og 4 á sekk. Ég ákvað svo að segja það gott svona fyrir fyrsta dag aftur. En strákarnir fóru uppí Wild Card. Þar tóku þeir padsæfingu saman.
Á þriðjudaginn mættum við um 10 leytið uppí Fortune. Þar var Villi að sjálfsögðu löngu kominn. En enginn Macka. Hann fór víst til læknisins fram til hádegis. Ég ákvað að taka æfingu með Villa í staðinn. Tók 4 lotur þar sem við vorum að fókusa á öndun og vörn. Tók svo 2 lotur sekk og 2 á dropa. Kolli tók sjálfur skuggabox, sekk. Bara rútínu. Við tókum svo púlið a la daði í kringum hádegi. Eftir hádegið tók Kolli padsæfingu með Macka. Þeir kíktu svo í bíó í frægasta bíósal í LA, The Dome, sem er núna bara 3D salur. Einstök upplifun á Avatar í annað sinn.

Nýleg ummæli