Jæja komin helgi aftur.
Á laugardag dró Kolli Ben með sér á conditioning æfingu hjá Justin. Kolli tók svo æfingu með Macka kl.10 og þegar hann var næstum búinn, með þó nokkrar lotur á sekkinn þá fékk hann þær upplýsingar að hann ætti að sparra við einhvern strák sem hafði keyrt 400 mílur til þess að fá að sparra. Macka sagði honum þá bara að hvíla sig þangað til hann kæmi. Kolli tók svo nokkrar lotur á móti þessu gæja, sem var eitthvað lægri og aðeins léttari. Samkvæmt Kolla kom gæjinn aðeins einu hreinu höggi á hann sem hann fann eitthvað fyrir. Kolli kom svo heim í hádeginu alveg búinn eftir morguninn. Þá var ég búin að ákveða að ég ætlaði ekki að vera veik lengur – búin að klæða mig í föt og tilbúin að fara út úr húsi
Við fórum og fengum okkur að borða og kíktum svo í bíó á Daybreakers, sem var misjöfn. Kíktum svo aðeins í plötubúðina og tölvuleikjabúðina og fórum svo heim. Svo var það bara rólegt vídjókvöld.
Í dag vaknaði ég um 10 og tók morgunskokk til að lífga vöðvana mína við og koma blóðrásinni aðeins á hreyfingu. Tók svo kvið og smá skuggabox. Villi þjálfari kom svo í heimsókn um hádegið
Við kíktum á flóamarkað og keyptum fullt af skóm og fórum svo og fengum okkur hádegismat. Þá fór ég með húsfélögunum í fjallgöngu í Griffith park. Yndisleg ganga og frábært útsýni. Ég ætlaði svo að fara með Sirrýju að klifra en á leiðinni komumst við að því að það var búið að loka
Kolli og Villi ákváðu að skella sér í Universal Studios göngu og skoðuðu ALLT. Fóru svo í bíó á Edge of Darkness þar sem Kolli borðaði allt sitt popp og afganginn af Villa líka. Fóru svo á Hard Rock og fengu einstaklega “óheita” afgreiðsludömu – Kolli var ekki sáttur. En Kolli fékk sér legendary 10 oz borgara sem var sko ekkert legendary. Næst ætla þeir að segjast eiga afmæli svo þeir fái fría köku

ooooo mig langar á flóamarkað að kaupa fullt af skóm … ooog í fjallgöngu í Griffith park …. ooooooooog í Universal Studios!!!
…. en þetta er allt í lagi – það er allt á kafi í snjó hérna og ég sé gönguskíðamannin fara framhjá á næstum hverjum degi … þú myndir fíla þetta en ég er komin með NÓG! þori ekki lengur að hjóla og ég þarf á mínum daglega hjólatúr að halda svo snjórinn má alveg fara að færa sig um set og fara bara heim til Íslands!
knús og sakna þín…
By: Lára sys on 3. febrúar , 2010
at 06:40
Gaman að lesa þetta, ekkeert nýtt að kolli éti eins og ég veit ekki hvað…
en hey kolli hva geturu tekið margar upphýfingar ?
By: dagur on 3. febrúar , 2010
at 08:29
Það var rétt! Veikindi eru bara hugarástand!
By: hfrboxing on 3. febrúar , 2010
at 17:21
Ef að þið vissuð það ekki (hvernig ættuð þið að vita það, hér er aldrei uppfært) þá gengu Ásdís og Kolli til liðs við Ringling Bros circusinn og performuðu atriði með honum í þættinum hans Jay Leno á föstudaginn. Þátturinn verður sýndur á Íslandi í lok þessarar viku. Um helgina tóku þau sig svo til og fylltu Grand Canyon með borðtennisboltum og bjuggu þar með til stærsta Boltaland sögunnar!
By: Daði on 8. febrúar , 2010
at 07:20
nei sko Ringling Bros var ekki að ráða þannig að við ákváðum að sækja um á hollywood boulevard. Ég sem beatbox og Kolli sem breikdansari. Við byrjuðum í dag og það gekk einstaklega vel. Kolli er búinn að næla sér í rosaleg múv!!!
By: Dísa on 8. febrúar , 2010
at 21:52