Posted by: Dísa | 15. febrúar , 2010

TILKYNNING

Kolli hefur fengið bardaga í Las Vegas þann 28.febrúar næstkomandi!!

Ég fékk ekki bardaga og mun því gerast yfirklappstýra og camerawoman það kvöldið og styðja hann fyrir ykkur öll sem munið væntanlega styðja hann í huganum :)

Posted by: Dísa | 15. febrúar , 2010

Dagar 32 & 33 & 34

Föstudagur

Sparr um morguninn við Whitney. Stóð mig mjög vel fyrstu 1 og 1/2 lotuna. Macka var einstaklega sáttur með það, var að vinna vel fyrir utan, góður fótaburður og lét tilburði hennar ekki hafa áhrif á mig. En svo bara tók hún að pressa eins og brjálæðingu og náði svo mörgum höggum sem ég átti bara ekkert svar við, því miður. Er ennþá að kikna undan þessari pressu í hringnum, ekki nógu gott. Macka var svekktur því að hann segir að ég sé betri en hún og eigi að getað “outthink her”. Hún sé ekki erfið að sjá í gegnum. Ég var eins og gefur að skilja ekki mjög sátt eftir þetta og flýtti mér því að taka styrkinn og einhverja brennslu og lét mig svo hverfa. Kolli tók 45mín af skuggaboxi og fótavinnu uppí hring og tók svo styrk. Villi og Kolli fóru svo að fá sér að éta á Baja Fresh og fengu sér spiced burritos. Kíktu svo í bíó á Wolfman sem var quote Kolli “mehhh”. Kvöldið hjá mér var tekið rólegt. Ég og Sirrý horfðum bara á fullt af Grey’s Anatomy uppí sófa.

Laugardagur

Kolli fór í conditioning hjá Justin um morguninn og tók svo 6 lotur á pads og 6 lotur á sekk með Macka. Ég fór út að hlaupa í klst kringum hádegið og tók svo miniæfingar. Annars var laugardagurinn mjög rólegur. Við héngum bara heima og horfðum á hina ýmsu þætti. Kolli fór 2var á FatBurger – þeir eru víst rosalega góðir ;)

Sunnudagur

Algjör afslöppun. Nema Kolli tók smá skokk eftir 3ja skiptið af FatBurger á hálfum sólarhring! Villi kíkti nefninlega í heimsókn og Kolli vildi fara með hann þangað :) Annars bara rólegheit á þessum Valentínusardegi. Kolli sat bara úti og sleikti sólina og horfði á eitthvað í tölvunni og ég lá uppi í rúmi að lesa.

Posted by: Dísa | 15. febrúar , 2010

Dagur 30 & 31

Miðvikudagur

Mætti í sparr kl.9. Macka var mættur. Tókum 3 lotur og ég stóð mig vel. Var að ná að slaka vel á og halda fjarlægð allan tímann. Fótavinnan er líka að verða betri. Macka var sáttur. Svo tók ég 3 lotur á sekk og svo teygjubolta og dropa. Tók svo smá pásu. Kolli sparraði klukkan 11 við “boltann”. Þeir tóku 6 lotur og á meðan tók ég interval á þrekhjólinu. Kolli stóð sig mjög vel og Macka var sáttur við framfarirnar. Hann tók svo nokkar á sekk. Við enduðum svo á styrk saman. Við fórum svo öll heim til mín og Kolla að eta. Ben kom skyndilega heim með fullt af málningu og við þurftum því að rýma herbergið okkar og setjast að inni í stofu, okkar nýja heimili það sem eftir er af dvölinni. Kolli og Villi þurftu svo að hendast upp í gym aftur kl.3 því að þeir ætluðu að fá far til að horfa á bardagann hans Chris. Ég kíkti með Sirrýju í Amoeba og hún keypti Dead Man með Johnny Depp sem við ákváðum svo að horfa á um kvöldið. Einstaklega spes mynd. Kolli kom svo heim með þær fréttir að Chris hefði tapað bardaganum. Hafði víst ekki borðað fyrir hann og var alveg máttlaus. Einhver gæji sem hann hefði átt að rústa, því miður.

Fimmtudagur.

Mættum um hálf 10 í gymmið. Tókum bæði pads hjá Macka og svo sekk á eftir það. Kolli tók svo púlið uppi í gymmi en ég hentist í sturtu því Sirrý var að koma að sækja mig til að fara að klifra. Fór fyrst í Guitar Center og sótti effect sem ég hafði pantað. Þar hitti ég fyrir Slash – sem var heldur sjúskaðri en ég bjóst við :P   Þegar við komum í klifurgymmið byrjaði ég á því að taka belay-test og eftir það gátum ég og Sirrý toprope-að eins og við vildum :) Endaði svo á púlinu hans Daða. Svo var mæting heim til okkar kl.5 til að fara í Magic Castle!!! Það er megadresscode þangað inn þannig að strákarnir fengu lánað hitt og þetta frá Ben til að komast inn. Svo vorum við tilbúin öll prúðbúin til að taka leigara þangað kl.6. Þegar við komum þurftum við að segja “open sesame” við lokaða hurð til að komast inn :) Við áttum frátekið borð á veitingastaðnum þannig að þar byrjuðum við. Fengum öll dýrindismáltíðir með öllu inniföldu. Að loknum matnum þá fórum við á fyrstu sýningu kvöldsins. Við gengum svo koll af kolli á milli snilldarsýninga töframanna og annars listafólks allt kvöldið. Enduðum svo á einni sýningu í litlum sal þar sem að ég var látin sitja fremst og vera aðstoðarmaður töframannsins. Áður en hann kom fram fannst Villa rosasniðugt að brydda upp á samræðum um mig til að láta mér líða ennþá betur þarna uppi – takk Villi ;)   Ég fékk svo að taka þátt í atriðinu, sem var reyndar skemmtileg upplifun :) Við enduðum svo kvöldið á því að kynnast einstaklega góðum tengilið í Vegas, sem getur reddað okkur inn á nánast allt ef maður er þar. Frábært kvöld í alla staði :)

Posted by: Dísa | 15. febrúar , 2010

Dagar 28 & 29

Aftur kominn mánudagur.

Sparr hjá mér í Fortune klukkan hálf 9. Svaf yfir mig. Vei. En svo lukkulega vildi til að það var mikil umferð svo að hún var sein sjálf. Ekki samt jafnsein og ég. Það góða við að vera sein var að Macka var mættur :) Tókum 3 lotur. Gekk mun betur en síðast. Var að ná að slaka betur á og halda henni í fjarlægð. Macka vildi að ég einbeitti mér að því, ásamt því að verja mig. Sóknin væri aukaatriði. Tók svo nokkrar á sekk og dropa. Seinni æfingin var hálftími sipp og svo styrkur ásamt kvið og miniæfingum. Kolli sparraði við 2 gæja, 3 og 3 lotur. Sá fyrri var óreyndur en stór og mikill. Kolli átti ekki í miklum vandræðum með hann. Hann tók svo styrkinn.  Kolli var eitthvað líkamsslappur og ákvað því að láta gott heita eftir þetta. Ég fór að klifra með Sirrýju eftir hádegið. Þar sem ég er ekki búin að læra að belaya þá boulderuðum við bara, og vorum þokkalega að standa okkur.

Þriðjudagur

Mættum um 10 leytið uppí gym. Tókum  bæði pads hjá Macka og unnum svo sjálf á gólfinu. Kolli var hálfveikur og fór heim eftir það að hvílast. Ég tók miðvikudagspúl ásamt kvið og meiri brennslu. Ég fór með heimilisfólkinu að klifra um kvöldið. Ég átti að mæta í belaying tímann minn kl.19 og var í því í tvo tíma. Tók svo nett klifursessjón með liðinu til lokunar kl.23. Vorum komin seint heim og bara beint í háttinn.

Posted by: Dísa | 8. febrúar , 2010

Dagur 27

Sunnudagurinn var góður dagur :)

Villi kom yfir um hálf 11 því við ætluðum að fá far með Maartin húsfélaga niður til Venice beach og Santa Monica Pier :) En við komum þó Kolla ekki úr rúminu svo að við skildum hann bara eftir. Þegar komið var niðureftir þá röltum við niður á bryggjuna í alveg hreint yndislegu veðri. Endalausir hlutir að skoða, eins og þeir sem hafa skoðað myndirnar hans Villa hafa séð :P Ég fékk til dæmis að tala við páfagauk og fékk einn koss frá henni líka. Svo röltum við meðfram allri Venice ströndinni og skoðuðum mannlífið. Sáum línuskautahokkí, strandblak, körfubolta, skate-park, útilyftingar, söng og dans. Alls konar lýð :) Töluðum við götusalana og dönsuðum með tónlistinni. Svo á leiðinni til baka þá tókum við ströndina og fengum smá sand undir yljarnar og sjó – upp að hnjám (var ekki nógu snögg :P ). Tókum svo smá rölt á 3rd street promenade og Maartin bauð okkur svo að borða snilldargóðan mat þar sem hann vinnur, á Le Pain Quotidien, einstaklega fansí organic veitingastaður. Við hjálpuðum honum svo að gera upp þar sem Villi fékk nafnið Villi “the stapler” vegna einstakra hæfileika með heftarann :)   Þegar ég kom heim hafði Kolli staðið sig einstaklega vel í að horfa á fáránlega marga sjónvarpsþætti á netinu ásamt Super Bowl og að borða mat. Svo var bara svefninn fyrir átök komandi viku.

Posted by: Dísa | 8. febrúar , 2010

Dagar 25 & 26

Föstudagur

Mættum um 8 leytið um morguninn. Villi var mættur. Ég átti að sparra við Whitney. Tókum 3 lotur í þetta sinn. Ég stóð mig betur en síðast, en á enn langt í land. Ég þarf sértaklega að vera afslappaðri í návígi. Ég tók svo nokkrar lotur á sekk og endaði á styrk. Kolli sparraði síðasta skiptið í bili við Chris. Hann á bardaga á miðvikudaginn. Þeir tóku 4 lotur. Kolli stóð sig mjög vel og leyfði honum ekki að komast upp með neitt fansí stöff. Ég fór heim um hádegi en Kolli og Villi urðu eftir. Kolli tók styrk eftir hádegið. Þeir tveir horfðu svo á magnað sparr með Vivian Harris vs Veto og Danny. Magnað stöff. Eftir hádegið tók ég sippsessjón heima og tók svo kvið og armbeygjur og svona. Húsfólkið plataði mig svo til að koma í klifurgymmið og vá hvað ég sá ekki eftir því :)   Frábært kvöld og snilldarfélagsskapur.

Laugardagur

Tókum conditioning hjá Justin kl.8. Þá fór ég heim að horfa á söngvakeppnina – ég veit, ég er nörd. Kolli var áfram og tók 3 lotur intense pads með Macka og svo 4 lotur á sekk. Kolli og Villi kíktu svo á Hooters þar sem maturinn var ekki góður og brjóstin á stelpunum voru mikil vonbrigði. En aðeins til að létta lundina þá voru þær nú sætar samt :) Kolli kom svo heim og við tjilluðum það sem eftir var af deginum. Kolli náttúrulega megasáttur með nýju tölvuna sem hann fékk sér :D

Posted by: Dísa | 8. febrúar , 2010

Dagar 23 & 24

Miðvikudagur

Fórum snemma uppí Fortune um morguninn því ég átti að sparra hálf 9. Tók 2x3mín lotur og stóð mig ekki nógu vel. Sem betur fer verður þetta 3var í viku þannig að ég hef tækifæri til að sýna hvað í mér býr. Kolli átti svo að sparra um hálf 11. Ég tók styrkinn á meðan hann hitaði upp. Hann fékk að sparra við 2 gæja í dag. Fyrst lítinn bolta sem var alveg nett höggþungur en Kolli tók hann tiltölulega auðveldlega. Sérstaklega í 3ju lotu. Svo fór hann 2 lotur á móti Chris, sem hafði verið að brillera í lotunum á undan. Algjörlega að toppa núna rétt fyrir annan pró bardagann sinn. Allt sem Chris hafði verið að gera í fyrri lotum kaffærði Kolli í fæðingu. Stóð sig mjög vel.

Fimmtudagur

Ákváðum að byrja á því að fara uppí Wild Card um morguninn til þess að losna við Pacquiao-umferðina. Tókum rúmlega klukkustundar æfingu um 9 leytið. Pads hjá Villa. Fórum svo uppá herbergi til Villa og horfðum á eina bíómynd. Villi og Kolli töluðu við strákana í Æsir á skype :) Vorum svo komin uppí Fortune um hálf 2 leytið. Kolli tók pads hjá Macka og svo einhverjar lotur á sekk. Ég tók skuggabox og fótavinnu. Tók svo púl, kvið og bjönsj af sippi – þarf víst að létta mig um einhver pund :) Eftir æfingu fórum við á brasilískan veitingastað og borðuðum kvöldmat. Röltum svo niður á LA ink. Rosalega flott pleis. Mikið af listamönnum þarna. Maður var mikið að pæla í því að fá sér – þangað til maður heyrði verðin :/ Ákváðum svo að fara bara heim. En ekki fyrr en búið var að koma við í stærstu discount skóbúð sem ég hef séð! Það er með ólíkindum að ég kom bara með eitt skópar þaðan út :P

Posted by: Dísa | 8. febrúar , 2010

Dagar 21 og 22

Aftur kominn mánudagur.

Mættum uppí Fortune gym um korter í níu. Villi var þar mættur fyrir löngu og búinn að æfa. Hitti Jesse og sagðist myndu sparra á miðvikudaginn. Ég tók svo nokkrar lotur pads með Macka – ekkert of intense, orkan ennþá að hlaðast. Ég tók svo teygjubolta og dropa. Kolli átti að sparra aðeins seinna. Á meðan hann var að hita upp tók ég styrkinn, framstigsganga-skakkar armb-upphýf-búlg hnéb-hang hnélyftur-bóndaganga. Sparrið hans Kolla mætti svo ekki eftir allt saman og því tók hann 4 lotur pads með Macka og 4 á sekk. Ég ákvað svo að segja það gott svona fyrir fyrsta dag aftur. En strákarnir fóru uppí Wild Card. Þar tóku þeir padsæfingu saman.

Á þriðjudaginn mættum við um 10 leytið uppí Fortune. Þar var Villi að sjálfsögðu löngu kominn. En enginn Macka. Hann fór víst til læknisins fram til hádegis. Ég ákvað að taka æfingu með Villa í staðinn. Tók 4 lotur þar sem við vorum að fókusa á öndun og vörn. Tók svo 2 lotur sekk og  2 á dropa. Kolli tók sjálfur skuggabox, sekk. Bara rútínu. Við tókum svo púlið a la daði í kringum hádegi. Eftir hádegið tók Kolli padsæfingu með Macka. Þeir kíktu svo í bíó í frægasta bíósal í LA, The Dome, sem er núna bara 3D salur. Einstök upplifun á Avatar í annað sinn.

Posted by: Dísa | 3. febrúar , 2010

Dagar 19 & 20

Jæja komin helgi aftur.

Á laugardag dró Kolli Ben með sér á conditioning æfingu hjá Justin. Kolli tók svo æfingu með Macka kl.10 og þegar hann var næstum búinn, með þó nokkrar lotur á sekkinn þá fékk hann þær upplýsingar að hann ætti að sparra við einhvern strák sem hafði keyrt 400 mílur til þess að fá að sparra. Macka sagði honum þá bara að hvíla sig þangað til hann kæmi. Kolli tók svo nokkrar lotur á móti þessu gæja, sem var eitthvað lægri og aðeins léttari. Samkvæmt Kolla kom gæjinn aðeins einu hreinu höggi á hann sem hann fann eitthvað fyrir. Kolli kom svo heim í hádeginu alveg búinn eftir morguninn. Þá var ég búin að ákveða að ég ætlaði ekki að vera veik lengur – búin að klæða mig í föt og tilbúin að fara út úr húsi :) Við fórum og fengum okkur að borða og kíktum svo í bíó á Daybreakers, sem var misjöfn. Kíktum svo aðeins í plötubúðina og tölvuleikjabúðina og fórum svo heim. Svo var það bara rólegt vídjókvöld.

Í dag vaknaði ég um 10 og tók morgunskokk til að lífga vöðvana mína við og koma blóðrásinni aðeins á hreyfingu. Tók svo kvið og smá skuggabox. Villi þjálfari kom svo í heimsókn um hádegið :D   Við kíktum á flóamarkað og keyptum fullt af skóm og fórum svo og fengum okkur hádegismat. Þá fór ég með húsfélögunum í fjallgöngu í Griffith park. Yndisleg ganga og frábært útsýni. Ég ætlaði svo að fara með Sirrýju að klifra en á leiðinni komumst við að því að það var búið að loka :(   Kolli og Villi ákváðu að skella sér í Universal Studios göngu og skoðuðu ALLT. Fóru svo í bíó á Edge of Darkness þar sem Kolli borðaði allt sitt popp og afganginn af Villa líka. Fóru svo á Hard Rock og fengu einstaklega “óheita” afgreiðsludömu – Kolli var ekki sáttur. En Kolli fékk sér legendary 10 oz borgara sem var sko ekkert legendary. Næst ætla þeir að segjast eiga afmæli svo þeir fái fría köku :)

Posted by: Dísa | 3. febrúar , 2010

Dagar 17 & 18

Á fimmtudaginn hafði ég hugsað mér að mæta aftur á æfingu, ég var ekki svo lukkuleg. Var orðin verri af ógeðinu. En Kolli að sjálfsögðu fór út að æfa um morguninn. Hann fór uppí Fortune gym til Macka. Hann tók 3 lotur á pads og 4 á sekk. Var að æfa það sama og vanalega, fjarlægð, vörn, hreyfingu og stungu. Macka: “This is very simple.  It’s not brain surgery or else I wouldn’t be doing this”. Hann tók svo jafnvægisæfingar og skiptingar og að lokum miðvikudagspúl a la daði.

Við eyddum  svo kvöldinu í félagsskap húsfélaganna okkar. Okkur langaði að spila borðspil en það var bara eitt svoleiðis til, The Bachelorette game. Við létum til leiðast. Spilendur voru tvær stelpur, tveir hommar og Kolli. Spes – en var nú samt nett gaman :)   Martin endaði svo á því að hræða okkur nett með draugasögunum sínum – bara svona fyrir svefninn :P

Föstudagurinn var ekki miklu skárri fyrir mig – lá bara í rúminu allan daginn hóstandi eins og reykingamaður. Kolli tók rútínuna á þetta og fór upp í Fortune gym til Macka. Hann sparraði 3 lotur við Chris (svarta stóra manninn). Menn höfðu á orði að hann væri orðinn betri. Hann tók svo 4 lotur á sekk og að lokum styrktaræfingar. Macka sendi hann svo heim að hvíla sig.

Ben og Kolli ákváðu svo að taka stóra flatskjáinn sem var inni í herbergi hjá okkur og setja hann inní stofu svo þeir gætu farið í tölvuleiki. Svo sátu þeir þar fram undir kvöld límdir við skjáinn :)

Older Posts »

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.